Feb 6, 2009

Myndband af U18 ára æfingu



Hérna er stutt myndband sem ég tók upp á símanum mínum af U18 ára æfingu hjá West Ham. Doddi er reyndar ekki með þarna í spilinu því þjálfararnir ákváðu að hvíla hann frá spilinu í lokin á þessari æfingu þar sem þeir vildu hafa hann ferskan á æfingunni daginn eftir með U14 ára liðinu. Þið afsakið slök gæði á þessu myndbandi en ég var laumupúkast að taka þetta upp, þar sem þjálfarar West Ham kæra sig ekki um videóupptökur af sínum unlingaliðsæfingum því það brýtur í bága við barnaverndalög sem félagið þarf að fylgja til að uppfylla kröfur Enska knattspyrnusambandsins til þess að kalla sig "Academy". En ég stalst samt ....

Þetta myndband gefur vísbendingu um hversu mikill hraði var á þessum æfingum. Fyrir þá sem ekki þekkja til 4.flokks fótbolta á Íslandi, þá kann þetta ekki að vera svo merkilegt, en þeir sem þekkja til skilja að það var eitt og sér góður árangur hjá Dodda að hanga með á þessu tempói ... í yfir þessar 2 klukkustundir sem æfingin varði venjulega. 

Á morgun kemur síðasta færslan á þessu bloggi þar sem síðustu 2 dögunum verður lýst og ferðin gerð upp. Þegar þetta er skrifað bíður okkar langdregið ferðalag heim og því kominn tími til að fara að pakka. 


No comments:

Post a Comment