May 7, 2009

Dagur 6 - Æfing með u-16 búin


Já góðir landsmenn, ég er kominn með íslenska stafi. Í dag var vaknað snemma og farið á æfingu með undir 16 ára liðinu, hún stóð yfir í kannski tvo klukkutíma. Mikið tempó þar á bæ og allt annað þar en á u-14 æfingunum. Eftir æfinguna fórum við á hótelið hans pabba og ég skellti mér í bað með nýju West Ham baðöndinni sem ég keypti í Megastore-inu. Eftir það kíktum við í verslunarhallirnar og svo fórum við bara aftur á hótelið að hvíla okkur. Núna erum við bara í húsinu þar sem ég gisti og var að fá kóða að þráðlausa internetinu frá Hólmari svo að ég geti verið í fartölvunni minni. Eftir sirka 20 mínútur kíkjum við út að borða með Hólmari og svo fer ég bara að sofa því að það er æfing aftur með u-16 snemma á morgun.

Blogga meira seinna, bið að heilsa heim.

-Doddi

No comments:

Post a Comment