Nov 11, 2009

Frídagurinn

Dagur 4:

Já, þetta var frídagurinn minn þar sem að ég átti að hvíla mig og bara gera það sem ég vildi, það er einmitt það sem ég gerði. Við fórum í miðbæ Amsterdam með Metro-inu og skoðuðum borgina aðeins betur. Við kíktum líka á flóamarkað þar sem að við sáum margt sniðugt og ég keypti mér eitthverja hluti.

Við fórum sömu leið heim og löggðum okkur þegar á hótelið var komið því við vorum bæði dálítið þreytt eftir allt labbið. Þegar við vorum búin að fá okkur vænan blund fórum við niður að borða kvöldmat og vorum nú rétt í þessu að klára hann.

Á morgun mun ég fara á æfingu kl 15.00 þar sem að ég fæ að spila eitthvern smá leik á milli flokksins. Blogga um það á morgun hvernig mér gekk, bless í bili.

- Doddi

No comments:

Post a Comment