May 19, 2010

Dagur 1: Komnir til Belgíu

Nú erum við pabbi komnir til Belgíu eftir langa ferð...

Það var vaknað eldsnemma í morgun til að ná rútunni til Keflavíkur sem fór rúmlega fimm um morguninn. Fluginu var frestað um heilar 25 mínútur sem hafði engin áhrif á ferð okkar þar sem að við þurftum hvort eð er að bíða í tvo og hálfan tíma í Kaupmannahöfn þar sem að við millilentum. Við fórum svo frá Danmörku til Brussel en við vorum lentir um hálf fimm.

Þar hittum við bílstjórann sem að við munum væntanlega sjá mikið af þessar tvær vikur en hann mun skutla mér á æfingar og þess háttar.

Á morgun er æfing kl. 11 um morguninn og svo aftur kl. 18 um kvöldið þannig að ég þarf að ná góðum svefn og næra mig vel en ég var að enda við að slátra einni gúrme pítsu.

- Doddi

No comments:

Post a Comment